Heilsa

Heilræðavísur í anda lífsleikninnar

Rapptexti eftir Karl Ágúst Úlfsson

Ungum er það allra best

Að eiga val sem allra mest,

Að leika sér útum allar trissur

Og óttast hreint ekki að gera skyssur.

Að lesa og skrifa list er góð,

En líka að dansa og yrkja ljóð,

Að kunna að ærslast og eignast vini,

Ýmist af sam- eða gagnstæðu kyni.

VIÐLAG:

Litla gula hænan fann -

KÓR: Gagn og gaman - gagn og gaman -

Úr því eigin styrk hún spann -

KÓR: Gagn og gaman - gagn og gaman -

Ungum er það allra best

Að spyrja hvorki kóng né prest

Um hver megi gráta og hver megi kvarta,

En hlusta á sitt eigið hjarta.

Já, veröldin er full af formum,

bæði hringlóttum, köntuðum, keilum og gormum,

og það er afleitt, þótt það sé normið

að þvinga okkur öll inn í sama formið.

VIÐLAG:

Litla gula hænan fann -

KÓR: Gagn og gaman - gagn og gaman -

Úr því eigin styrk hún spann -

KÓR: Gagn og gaman - gagn og gaman -

Ungum er það allra best

Að setja sig á háan hest.

Það verður ekki öllu lýst með orðum

Þótt allt væri forðum

Í föstum skorðum -

Því sumt verður albest sagt með dansi

Og sumt með litum eða blómakransi,

Og sumt verður best sagt með því að brosa

Eða breiða út faðminn og hömlurnar losa.

VIÐLAG:

Litla gula hænan fann -

KÓR: Gagn og gaman - gagn og gaman -

Úr því eigin styrk hún spann -

KÓR: Gagn og gaman - gagn og gaman -








×