Körfubolti

Njarðvíkingar í undanúrslit

Njarðvíkingar eru komnir í undanúrslit í Powerade bikarnum, en undanúrslitin og úrslitaleikurinn fer fram um næstu helgi
Njarðvíkingar eru komnir í undanúrslit í Powerade bikarnum, en undanúrslitin og úrslitaleikurinn fer fram um næstu helgi Mynd/Vilhelm

Íslandsmeistarar Njarðvíkur urðu í gærkvöld fyrsta liðið til að tryggja sér sæti í undanúrslitum Powerade bikarsins í körfubolta þegar liðið vann öruggan 20 stiga sigur á Hamri/Selfoss á heimavelli sínum 99-79.

Brenton Birmingham skoraði 26 stig fyrir Njarðvík, Friðrik Stefánsson skoraði 24 stig og Jeb Ivey 23 stig. Lewis Monroe skoraði 30 stig fyrir Hamar og Bojan Bojovic skoraði 16 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×