Innlent

Krefst rannsóknar á framgöngu lögreglu gegn mótmælendum

Flokksstjórn Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs lýsir þungum áhyggjum af þeim fréttum sem nú berast af hörkulegri framgöngu og aðgerðum lögreglunnar gegn mótmælendum Kárhnjúkavirkjunar, ferðalöngum og náttúruunnendum sem fara um hálendið í nánd við virkjunarsvæðin norðan Vatnajökuls og jafnvel þótt í verulegri fjarlægð sé frá öllum framkvæmdasvæðum sem tengjast byggingu virkjunarinnar.

Í ályktun flokksstjórnar er minnt á að tjáningar- og skoðanafrelsi eru meðal hornsteina lýðræðis- og réttarríkisins og þar með rétturinn til að láta álit sitt í ljós og mótmæla enda sé það gert á friðsamlegan og viðeigandi hátt.

Þá krefst flokkstjórn VG þess að þegar í stað fari fram rannsókn á framferði lögreglunnar og meintu harðræði af hennar hálfu og aðgerðum sem falið hafa í sér óþarfa og jafnvel ólögmæta hindrun á ferðum fólks um öræfi landsins, eins og segir í ályktun flokksstjórnar VG.

Ennfremur segir að kanna þurfi sannleiksgildi þess þráláta orðróms að lögreglan hafi stundað umfangsmikla tilefnislausa og óheimila söfnun persónuupplýsinga, myndatökur og fleiri athafnir sem brjóti gegn friðhelgi einkalífs manna og ferðafrelsi. Lýsingar fólks af vettvangi á harkalegum aðgerðum lögreglu sem birst hafi í fjölmiðlum gefi fullt tilefni til tafarlausrar hlutlausrar rannsóknar.

Þurfi ekki síður að hafa í huga orðstír lögreglumanna en mannréttindi og frelsi hins almenna borgara í þessu sambandi. Komi í ljós að lögreglan hafi farið offari, hvað þá gerst sek um ólögmætt athæfi, telur flokksstjórn VG að þurfi þegar í stað að grípa til aðgerða svo slíkt endurtaki sig ekki og þeir sem þar bera ábyrgð svari síðan til saka fyrir dómstólum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×