Golf

Slakur dagur hjá Michelle Wie

Michelle Wie lauk deginumn á tveimur höggum yfir pari.
Michelle Wie lauk deginumn á tveimur höggum yfir pari. MYND/AP

Fyrsta umferðin í Opna breska meistaramóti kvenna í golfi stendur nú yfir á Royal Lytham og St Annes golfvellinum. Það er Juli Inkster frá Bandaríkjunum sem leiðir á sex höggum undir pari og hefur hún lokið hringnum. Michelle Wie hefur ekki náð sér á strik.

Þær Silvia Cavalleri frá Ítalíu og Maria Hjorth frá Svíþjóð eru saman í öðru sæti á þremur höggum undir pari, þær hafa einnig lokið deginum.

Michelle Wie stóð sig ekki nógu vel en hún lauk deginum á tveimur höggum yfir pari.

Annika Sorenstam hefur lokið leik og er á pari eftir 18 holur.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×