Innlent

Vija skýr svör um skipulag á Blómsturvallalóð

Íbúar í vesturbæ Reykjavíkur hafa safnað undirskriftum þar sem þess er krafist að allir flokkar sem bjóða fram til borgarstjórnarkosninga svari spurningum um skipulag á lóð á mótum Bræðraborgarstígs og Hávallagötu. Íbúarnir óttast að þar muni rísa fjölbýlishús en verktakinn sem keypt hefur lóðina segist ætla að reisa þar raðhús.

Húsið sem um ræðir nefnist Blómsturvellir og var reist árið 1897. Verktakafyrirtækið Holtsgata ehf. hefur nú fest kaup á lóðinni sem það stendur á en fyrirtækið reisir nú fjölbýlishús hinum megin götunnar við Bræðraborgarstíg 42 þar sem Stakkahlíð stóð áður. Íbúar í næsta nágrenni mótmæltu því á sínum tíma og hafa áhyggjur af því að eins fari með Blómsturvallalóðina.

Arthur Bogason, talsmaður íbúa, segir að hluti af ánægjunni við að búa í Vesturbænum sé skipulagið og götumyndin sem sé þar í dag en ekki framtíðarsýn verktaka sem langi til að byggja fjölbýli á litlum lóðum.

Arthur bendir einnig á að með því að byggja mikið á reitnum aukist bílastæðavandinn á svæðinu, en hann sé ærinn fyrir. Þá blæs hann á tal um þéttingu byggðar í þessu samhengi. Honum sýnist sem byggðin sé þétt eins og hún sé, sérstaklega í Vesturbænum, og það þurfi engar æfingar eins og við Blómsturvelli til að fullnægja einhverjum slíkum markmiðum.

Ólafur Björnsson, eigandi verktakafyrirtækisins Holtsgötu, sagði í samtali við fréttastofu í dag að ekki stæði til að reisa fjölbýlishús á reitnum heldur þrjú raðhús í líkingu við húsin sem væru við Hávallagötuna. Engin ákvörðun lægi þó fyrir um framkvæmdir á lóðinni þar sem enn ætti eftir að leita samþykkis borgarinnar fyrir þeim.

Íbúar í nágrenninu krafið alla flokkana í borginni um skýr svör um skipulag á lóðinni. Tveir flokkar höfðu svarað íbúunum í dag, F- og B-listi, og sögðust báðir vilja halda húsinu.

Arthur vonast til að íbúalýðræðið verði meira en þegar fjölbýlishúsið var reist við Bræðraborgarstíginn. Það hafi ekki virkað þá og hann voni að það verði eitthvað meira á bak við það í þessu máli.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×