Lífið

Horft í augun á Halle Berry

Halle Berry nýtur sín vel í The Last Stand og er í banastuði í Cannes.
Halle Berry nýtur sín vel í The Last Stand og er í banastuði í Cannes.
X-Men The Last Stand er hörkugóð mynd sem á ekki eftir að svíkja aðdáendur stökkbreyttu ofurhetjanna. Halle Berry klikkar ekki heldur og eftir að hafa horft í augun á henni get ég fullyrt að hún er miklu fallegri í eigin persónu en í nokkuri kvikmynd.

Persónurnar í nýju X-Men myndinni halda áfram að þróast leikurunum til mikillar ánægju en þau voru flest á einu máli um það að tækifærið til þess að fá að dýpa hlutverk sín með þremur myndum hafi gert vinnuna við þá nýjustu enn ánægjulegri. Þetta heiðursfólk var allt ferega afslappað og næs í dag. Hugh Jackman virðist vera fullkomlega hrokalaus eðaltöffari og Kelsey Grammer var í banastuði og sló á létta strengi.

Halle Berry var einnig alveg laus við stjörnustæla og talaði af einlægni um kynþáttafordómana sem hún hefur orðið fyrir og erfiðleika í einkalífinu. Hún er samt að eigin s-gn mjög hamingjusöm í dag enda nýbúin að finna nýjan kærsta sem er tíu árum yngri en hún en virðist ætla að reynast henni vel.

Þrátt fyrir þessi almennielgheit öll skyggir enginn leikarana úr X-Men á Famke Janssen. Hún er afslöppuð í fasi og miklu frekar falleg en sæt en þar liggur eðlismunur og fegurð Janssen er þess eðlis að hún veðrast ekki af heldur eykst með árunum. Hún hafði ýmislegt til málanna að leggja og það var ekki leiðinlegt að hlusta á hana. Ég ætla samt að geyma það fyrir Fréttablaðið þegar hún fór að tala um uppáhalds samfarastellinguna sína án þess að blikka auga.

Sir Ian McKellen var sjéntílmaður fram í fingurgóma eins og við var að búast. Sést langar leiðir að þar fer toppmaður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×