Sport

Grindavík lagði Keflavík

Grindavíkurstúlkur tryggðu sér í kvöld annað sætið í Iceland Express deild kvenna í körfubolta þegar þær lögðu granna sína í Keflavík 77-70 í hreinum úrslitaleik um hvort liðið yrði með heimavallarréttinn í fyrstu umferð úrslitakeppninnar.

Tamara Stocks var stigahæst í liði Grindavíkur með 29 stig og Hildur Sigurðardóttir skoraði 25. Lakiste Barkus skoraði 23 stig fyrir Keflavík og Birna Valgarðsdóttir skoraði 13 stig.

Haukastúlkur fengu afhentan deildarbikarinn eftir sigur á Breiðablik 78-55 á heimavelli sínum og ÍS lagði KR í Kennaraskólanum 78-56. Það er því ljóst að í fyrstu umferðinni mæta Haukar liði ÍS og Grindavík verður með oddaleikinn gegn Keflavík. Lið KR fellur úr deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×