Fastir pennar

Birtum fleiri skopmyndir

Einu viðbrögðin við mótmælum í múslimalöndum gegn teikningunum af Múhammeð spámanni sem birtust í Jótlandspóstinum er að birta fleiri myndir. Út um allt, í blöðum og á vefnum. Hræddir pólitíkusar og bisnessmenn vilja að Jótlandspósturinn biðjist afsökunar en ritstjórar blaðsins hafa neitað hingað til - neyðast til að vera í felum.

Óðir menn brenna danska fánann, hafa í hótunum við norræna borgara, ekki bara Dani, heldur líka Svía og Norðmenn, heimasíða Jótlandspóstsins hefur verið hökkuð. Allt vegna skopmynda sem birtast í ekki sérlega útbreiddu blaði. Maður bíður eftir því að einhver týni lífi vegna þessa máls.

--- --- ---

Þarna er verið að hvetja til ritskoðunar - en fyrst og fremst sjálfsritskoðunar. Líkt og þegar hamast var á Salman Rushdie vegna Söngva Satans er beitt ofbeldi til að kúga fólk til að þegja. Á þeim tíma vildu margir kenna Rushdie sjálfum um, að hann hefði grafið sína eigin gröf - sama viðhorf heyrir maður nú gagnvart danska blaðinu.

Einhverjir segja kannski að ekki megi móðga trúarbrögð annarra þjóða - fjölmenningarsinnar gætu sjálfsagt borið því við - en það er einmitt það sem má samkvæmt okkar vestrænu lýðræðis- og málfrelsishefð. Guðlast er umborið jafnvel þótt það þyki ósmekklegt – við getum ekki breytt því vegna þess að múslimar fara í fýlu.

Kristnin hefur lengi verið skotspónn háðfugla, hún hefur verið tekin sundur í öllum tegundum af gríni, meinlausu og andstyggilegu, allt frá meyfæðingunni til krossdauðans og heilagrar þrenningar - þetta er heil bókmenntagrein sem hefur verið tll allt frá tíma Voltaires.

Þetta er hægt vegna þess að í samfélagi okkar tókst - á löngum tíma og með miklum erfiðismunum - að skilja á milli hins veraldlega sviðs og hins trúarlega. Ekki einu sinni hinir trúuðu vilja snúa aftur til gamla tímans - að minnsta kosti fæstir hér í Evrópu.

Það er einmitt dragbítur á íslömsk samfélög að trúin og pólitíkin er í einum graut. Þess vegna er hægt að efna til slíkra múgæsinga.

--- --- ---

Það er búið að blása þetta skopteikningamál upp úr öllu valdi. Myndirnar sem við sjáum af æstum múg að mótmæla þeim eru í aðra röndina hlægilegar. En auðvitað líka ógnvekjandi, líkt og alltaf þegar maður horfir framan í blint ofstæki. Öfgamennirnir sjá sér hag í að forheimska fólk með þessu. Ríkistjórnir spila með því þetta beinir athyglinni frá ómögulegu stjórnmálaástandi heimafyrir. Það þarf svolítið að spá í hverjir hafa mestan hag af að efna til slíkra æsinga.

Það má alls ekki beygja sig fyrir þessu, heldur er eina andsvarið að birta fleiri svona myndir - ofbeldismönnunum mun vaxa í augum að þurfa að ofsækja þúsundir blaðamanna, ritstjóra og netverja. Þið gætuð til dæmis kópíerað myndirnar sem birtist með þessari grein og sett þær sem víðast.





×