Innlent

Árangurinn kom Ásthildi á óvart

Ásthildur Helgadóttir segir árangurinn hafa komið sér á óvart.
Ásthildur Helgadóttir segir árangurinn hafa komið sér á óvart. MYND/E.Ól.

Gunnsteinn Sigurðsson vann baráttu fjögurra einstaklinga um annað sætið á framboðslista Sjálfstæðismanna í Kópavogi fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar. Einna mesta athygli í prófkjöri þeirra í gær vekur þó árangur nýliðans Ásthildar Helgadóttur sem segir árangurinn hafa komið sér á óvart.

Ásthildur Helgadóttir, fyrirliði kvennalandsliðsins í knattspyrnu, kom sá og sigraði í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Kópavogi. Hún kom til landsins á föstudag fyrir rúmri viku skömmu eftir að hafa lokið prófum í Svíþjóð þar sem hún er í námi, setti stefnuna á fjórða sæti listans og hreppti það. Síðdegis í dag heldur hún svo aftur út til að ljúka ritgerð við skólann.

Ásthildur segir árangur sinn hafa komið sér á óvart. Mikil barátta hafi verið um annað sætið og því hafi hún frekar átt von á því að lenda í fimmta sæti en því fjórða og hefði orðið ánægð með þann árangur. Ásthildur er að klára nám sitt og segist flytjast heim í næsta mánuði.

Það ríkti mikil eftirvænting í félagsheimili Sjálfstæðismanna í Kópavogi í gærkvöldi þegar úrslitin voru kynnt. Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri sóttist einn eftir að leiða listann og fékk sjötíu prósent atkvæða í fyrsta sætið. Baráttan stóð hins vegar um annað sætið sem fjórir frambjóðendur höfðu sett stefnuna á að ná. Þar stóð Gunnsteinn Sigurðsson uppi sem sigurvegari en Ármann Kr. Ólafsson, forseti bæjarstjórnar varð í þriðja sæti. Nýliðinn Ásthildur Helgadóttir hreppti sem fyrr segir fjórða sæti listans, bæjarfulltrúinn Sigurrós Þorgrímsdóttir endaði í því fimmta og næstar komu Margrét Björnsdóttir og Ragnheiður Kr. Guðmundsdóttir. Athygli vekur að tvö þeirra fjögurra sem stefndu á annað sætið sátu uppi í tíunda og ellefta sæti, það eru þau Jóhanna Thorsteinsson og Bragi Michaelsson.

Úrslit prófkjörsins

1. Gunnar Ingi Birgisson

2. Gunnsteinn Sigurðsson

3. Ármann Kr. Ólafsson.

4. Ásthildur Helgadóttir

5. Sigurrós Þorgrímsdóttir

6. Margrét Björnsdóttir

7. Ragnheiður Kr. Guðmundsdóttir

8. Gróa Ásgeirsdóttir

9. Lovísa Ólafsdóttir

10. Jóhanna Thorsteinson

11. Bragi Michaelsson

12. Gísli Rúnar Gíslason

13. Hallgrímur Viðar Arnarson

14. Pétur Magnús Birgisson

15. Ingimundur Kristinn Magnússon



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×