Sport

Hættu að tala um að hætta

Bræðurnir Ralf og Michael Schumacher hafa aldrei verið feimnir við að gagnrýna hver annan í fjölmiðlum
Bræðurnir Ralf og Michael Schumacher hafa aldrei verið feimnir við að gagnrýna hver annan í fjölmiðlum NordicPhotos/GettyImages

Ralf Schumacher, ökumaður Toyota og bróðir fyrrum heimsmeistarans Michael Schumacher hjá Ferrari, hefur aldrei verið feiminn við að tjá skoðanir sínar á bróður sínum og nú hefur hann gefið það út að Michael ætti að hætta að tala um að leggja stýrið á hilluna og einbeita sér að því að vinna titla með liði sínu.

"Ef maður hefur unnið svona marga titla með liði sínu, á maður ekki að vera að tala um að hætta hjá því ef maður vinni ekki í lok tímabils, því þaðan á einmitt hvatningin að koma," sagði Ralf Schumacher. "Michael elskar enn að keyra og því held ég að hann ætti að halda áfram á meðan svo er. Hann hefur enn fullt erindi í toppbaráttuna að mínu mati."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×