Innlent

Þingmaður í loðnuleit

Varaformaður Frjálslynda flokksins er farinn í loðnuleit en ætlar að vera snúinn aftur heim þegar þingstörf hefjast eftir tæpar tvær vikur.
Varaformaður Frjálslynda flokksins er farinn í loðnuleit en ætlar að vera snúinn aftur heim þegar þingstörf hefjast eftir tæpar tvær vikur. MYND/Vilhelm

Magnús Þór Hafsteinsson, þingmaður og varaformaður Frjálslynda flokksins, er farinn út á sjó að leita að loðnu. Hann fór í loðnuleit sem afleysingaháseti á nótaskipinu Víkingi AK 100 frá Akranesi í gær, skömmu eftir að skipinu var rennt úr slippnum í Reykjavík.

Magnús Þór segir frá því á vef sínum að bróðir hans, sem er stýrimaður á Víkingi, hafi boðið honum að koma með einn túr og að slíkum forréttindum sé erfitt að jafna. Þetta er þó ekki í fyrsta skipti sem Magnús Þór fer í loðnuleit. Hann segir frá því á vefnum að hann hafi farið nokkra leiðangra með hafrannsóknaskipunum Bjarna Sæmundssyni og Árna Friðrikssyni eldri auk þess að sjá um loðnuleit Norðmanna við Jan Mayen í tvö sumur á árum áður.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×