Viðskipti innlent

Ójafnvægi efnahagslífsins veldur enn áhyggjum

Hörður Arnarson, forstjóri Marels, segir að tími sé til kominn að ræða á málefnalegan hátt mögulega aðild að Evrópusambandinu og upptöku evrunnar.
Hörður Arnarson, forstjóri Marels, segir að tími sé til kominn að ræða á málefnalegan hátt mögulega aðild að Evrópusambandinu og upptöku evrunnar.

Árið 2006 var mjög viðburðaríkt ár hjá Marel. Í tengslum við aðalfund félagsins í febrúar var kynnt metnaðarfull stefna um áframhaldandi vöxt þess. Í stefnunni fólst að Marel stefndi að því að leiða samrunaferli sem fyrirsjánlegt var að gerðist á mörkuðum félagsins.

Markmiðið var að þrefalda veltu félagsins á næstu þremur til fimm árum. Í kjölfarið var ráðist í kaup á tveimur alþjóðlegum félögum: AEW/Delford í apríl og Scanvægt í ágúst. Í framhaldi af því var hlutafé félagsins aukið með öflugri aðkomu erlendra fjárfesta, íslenskra lífeyrissjóða og almennings. Fyrirtækið er nú fjármagnað til þess að takast á við áframhaldandi vöxt í samræmi við yfirlýsta stefnu félagsins.

Seinni hluti ársins mótaðist af umfangsmiklum samþættingarverkefnum, sem ná munu fram að ganga á fyrri hluta ársins 2007. Samþættingarvinnan hefur gengið vel og líklegt að hún muni skila hluthöfum umtalsverðum framtíðarverðmætum, viðskiptavinum félagsins bættu vöru- og þjónustuframboði og starfsmönnum spennandi starfsþróunarmöguleikum.

Rekstrarumhverfi félagsins á Íslandi batnaði verulega er leið á árið með veikingu íslensku krónunnar. Verulegt áhyggjuefni er þó það ójafnvægi sem er í íslensku efnahagslífi sem kemur fram í verðbólgu, viðskiptahalla, háu vaxtastigi og spákaupmennsku með íslensku krónuna. Mjög vandasamt verkefni er framundan, sem er að vinda ofan af þessari stöðu.

Framundan tel ég að séu tvö málefni fyrir íslenskt efnahagslíf sem mikilvægt er að taka afstöðu til:

- Endurskoða þarf peningamálastefnuna í ljósi þeirrar reynslu sem nú hefur fengist af tveimur hagsveiflum. Stefnan hefur alls ekki skilað tilætluðum árangri og á löngum tímum hefur hún unnið þvert gegn markmiðum sínum. Ýmsar ástæður eru fyrir því en skortur á stuðningi við peningamálastefnuna frá sveitarfélögum, opinberum fyrirtækjum og stjórnvöldum hefur þar vegið mjög þungt.

- Ræða þarf á málefnalegan hátt mögulega aðild Íslendinga að ESB og upptöku evru. Hverjir eru raunverulegir valkostir og hvaða möguleikar skila bestu lífskjörum á Íslandi. Mikilvægt er að stjórnmálaflokkar og hagsmunasamtök taki á málefnalegan hátt þátt í þessari umræðu - umræðu sem átti sér stað fyrir meira en áratugi meðal allra annarra Evrópuþjóða.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×