Viðskipti innlent

Besta ár í sögu SPRON

Guðmundur Hauksson sparisjóðsstjóri SPRON er tilbúið fyrir næstu áskoranir eftir mikinn hagnað og sölu nýs stofnfjár sem hefur aukið eigið fé.
Guðmundur Hauksson sparisjóðsstjóri SPRON er tilbúið fyrir næstu áskoranir eftir mikinn hagnað og sölu nýs stofnfjár sem hefur aukið eigið fé.

Árið 2006 er vafalaust besta ár í sögu SPRON. Auk þess sem afkoman hefur aldrei verið betri komum við einstaklega vel út úr könnunum sem við teljum afar mikilvægar fyrir þjónustufyrirtæki eins og SPRON.

Í þjónustukönnun Capacent-Gallup kom fram að viðskiptavinir telja að SPRON sé að bjóða bestu þjónustu sem veitt er meðal fjármálafyrirtækja á Íslandi. Í sambærilegum könnunum sem sneru að innviðum SPRON kom einnig í ljós að starfsánægja starfsfólks er eins og best gerist á íslenskum fjármálamarkaði.

Og að lokum fengum við einkar ánægjulega viðurkenningu frá Jafnréttisráði fyrst fjármálafyrirtækja á Íslandi. Sú viðurkenning er okkur mjög dýrmæt, þar sem við höfum um langt skeið lagt ríka áherslu á uppbyggingu innri verðmæta SPRON. Þessar niðurstöður allar benda til þess að við séum á réttri braut og gefa okkur mikinn kraft til að takast á við krefjandi framtíðarverkefni og nýta sóknarfæri á fjármálamarkaði. Ég er því bjartsýnn á næsta ár. Við erum með öflugt fyrirtæki sem byggir á frábærum hópi starfsmanna og með auknu eigin fé í kjölfar góðrar afkomu, ásamt miklu innborguðu stofnfé, teljum við okkur vel í stakk búin til að takast á við áskoranir næsta árs.

Starfsumhverfi fjármálafyrirtækja hefur verið afar hagstætt undanfarin ár og þau hafa flest náð að styrkja stöðu sína myndarlega. Framvindan í efnahagsmálum mun hafa mikil áhrif á hvort svo verður áfram, og flest bendir til þess. Mesta óvissan er þó um þróun á gengi íslenskrar krónu. Það er mjög mikilvægt að Seðlabankinn nái að lækka stýrivexti sína án þess að það leiði beint til mikillar veikingar krónunnar. Takist það þá er ég sannfærður um að mjúk lending náist í efnahagslífi okkar. Slíkt væri mikill sigur í ljósi þess hve stórframkvæmdir á Íslandi undanfarin ár hafa sett mikinn þrýsting á hagkerfi okkar.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×