Viðskipti innlent

Veikur grunnur íslensku krónunnar er áhyggjuefni

Ólafur Ólafsson Í grein sinni segir Ólafur að horfur í viðskiptum á næsta ári séu almennt góðar og telur tilefni til sæmilegrar bjartsýni.
Ólafur Ólafsson Í grein sinni segir Ólafur að horfur í viðskiptum á næsta ári séu almennt góðar og telur tilefni til sæmilegrar bjartsýni. Mynd/Hreinn Magnússon

Athyglisverðustu tíðindin í viðskiptalífinu á Íslandi árið 2006 eru án vafa áhlaupið sem gert var á íslenskt efnahagslíf undir lok fyrsta ársfjórðungs. Þrátt fyrir að rekstur fyrirtækja hafi almennt gengið vel þá sannaði þetta áþreifanlega hversu brothætt íslenska hagkerfið er, meðan krónan spilar jafn stórt hlutverk í peningamálastefnunni og raun ber vitni.

Þá var ekki síður athyglisvert að sjá hvernig íslenski fjármálamarkaðurinn og stjórnendur fyrirtækja brugðust við þessari árás. Með markvissum vinnubrögðum tókst að hrinda atlögunni og endurheimta fyrra traust. Einnig hefur verið áhugavert að fylgjast með áframhaldandi uppgangi íslenskra fyrirtækja og fjárfesta á erlendum vettvangi og hversu vel flest þau verkefni hafa verið að ganga.

Á mínum starfsvettvangi hefur yfirstandandi ár verið tími mikilla umskipta. Í kjölfar breyttrar starfsemi sem einskorðast við neytendamarkað í Vestur-Evrópu var nafni SÍF breytt í Alfesca. Hafa breytingarnar gengið mjög vel og framundan eru mjög áhugaverðir tímar í rekstri fyrirtækisins að okkar mati.

Hjá Samskipum höfum við verið að reka endahnútinn á sameiningu allrar starfsemi félagsins undir einu nafni og hefur það verið flókið og erfitt ferli. Samtímis hefur verið unnið að áframhaldandi uppbyggingu, bæði heima og erlendis, og tókum við m.a. í gagnið fjögur ný gámaflutningaskip á árinu í Evrópusiglingum félagsins.

Almennt eru horfur í viðskiptum nokkuð góðar á komandi ári. Ég tel að menn geti verið sæmilega bjartsýnir hvað varðar rekstrarumhverfi fyrirtækja, bæði innanlands og utan, þó svo smæð myntkerfisins og sveiflukennd áhrif krónunnar á stöðu fyrirtækja og þar með á efnahagslífið séu vissulega áframhaldandi áhyggjuefni.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×