Bíó og sjónvarp

Bob hótar málssókn og látum

Edie Sedgwick
Edie Sedgwick

Hinn 27. desember verður kvikmyndin Factory Girl frumsýnd í Bandaríkjunum en hún fjallar um Edie Sedgwick sem lék í mörgum stuttmyndum eftir Andy Warhol og var honum mikill innblástur.

Edie var nokkurs konar Paris Hilton hins þenkjandi manns á sjöunda áratugnum og átti samneyti við marga lykilleikmenn skemmtana- og listalífsins á þeim tíma. Ekkert gæti þó orðið af frumsýningunni því nú hefur tónlistarmaðurinn Bob Dylan hótað málssókn ef myndin verður ekki endurskoðuð.

Upphaflega átti Bob að vera persóna í myndinni en sökum lagaflækja og skorts á staðreyndum var nafni persónunnar breytt í Billy Quinn. Í myndinni eiga Edie og Quinn í stuttu ástarsambandi, en eftir að Quinn skilur við Edie leggst hún í fíkniefnaneyslu og að lokum sviptir hún sig lífi. Dylan er alveg æfur yfir þessu og segist ekki ætla að sitja aðgerðar­laus á meðan honum er gefið að sök að bera ábyrgð á dauða manneskju.

Lögfræðingar Dylans hafa sent framleiðendum myndarinnar bréf þar sem þeir krefjast þess að myndinni verði breytt, frumsýningu frestað og að persónan Billy Quinn verði fjarlægð að öllu leyti. Enn hafa ekki borist svör við kröfum Dylans, en þeirra er að vænta á næstu dögum. Svarthöfði sjálfur, Hayden Christensen, fer með hlutverk Billy Quinn, Guy Pearce leikur Andy Warhol og breska ungstirnið Sienna Miller leikur Edie.

Bob Dylan fer fram á að myndinni verði breytt.


.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×