Lífið

Miðasala á Magna í dag

Magni og félagar úr Rock Star-þættinum spila í Höllinni á tvennum tónleikum.
Magni og félagar úr Rock Star-þættinum spila í Höllinni á tvennum tónleikum.
Aukatónleikar með þátttakendum úr raunveruleikaþættinum Rock Star: Supernova verða haldnir í Laugardalshöll 1. desember.

Fyrri tónleikarnir verða haldnir 30. nóvember og vegna mikillar eftirspurnar var ákveðið að bæta við öðrum tónleikum. Magni, Dilana, Toby, Storm og húsbandið úr Rock Star: Supernova mæta til leiks, auk þess sem hljómsveitin Á móti sól mun hita upp með lögum af væntanlegri safnplötu sinni.

Miðasala á aukatónleikana hefst í dag klukkan 12.00 á midi.is og í verslunum Skífunnar. Einnig er hægt að nálgast þá í BT á Akureyri og Egilsstöðum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×