Viðskipti innlent

FL Group styður útrás íslenskrar tónlistar

Stuðningur fjárfestingarsjóðsins Tónvíss við verkefni þeirra Garðars Thórs og Bang Gang, með Barða Jóhannsson í broddi fylkingar, mun meðal annars felast í útgáfu- og kynningarstarfsemi. Við kynningu á sjóðinum sem haldin var í Listasafni Reykjavíkur í vikunni voru listamennirnir sammála um það að samstarfið kæmi sér einkar vel fyrir þá enda hafa þeir báðir næg verkefni á takteinum í nánustu framtíð. Það kostar gríðarlega mikið að gefa út erlendis og erfitt að gera það upp á eigin spýtur, segir Garðar, sem mun til að byrja með njóta stuðnings sjóðsins í Bretlandi, þangað sem hann á fyrirhugaða tónleikaferð á næstu misserum. Barði vinnur nú að útgáfu tónlistar Bang Gang í Bandaríkjunum ásamt útgáfufélagi sínu og Sigurðar Pálma Sigurbjörnssonar, From Nowhere Records, og sjóðurinn mun koma að því verkefni.

Tónvís verður, að sögn Hannesar Smárasonar, forstjóra FL Group, ólíkur styrktarsjóðum eins og þeir hafa þekkst hingað til hér á landi. Við munum hjálpa listamönnunum að koma sinni list á framfæri utan landsteinanna, taka áhættuna með þeim og fá af því ávinning ef hann verður til. Okkar styrkur til þeirra felst ekki bara í fjárfestingunni heldur ætlum við að koma með ákveðna viðskiptahugmyndafræði inn líka og fylgjast náið með framgangi mála. Hannes segir stofnun sjóðsins falla vel að markmiði FL Group um að styðja við íslenska tónlist. Við höfum sett okkur það markmið að styðja við menningu og höfum einbeitt okkur sérstaklega að tónlistinni. Við erum aðalstyrktarfélag Sinfóníunnar, við erum að fara að styrkja tónleikana hjá Sykurmolunum og nú erum við að stofna þennan sjóð.

 

Garðar Thór Cortes

Því fylgir vissulega mikil áhætta að fjárfesta í útrásarverkefni með tónlist og sumir myndu álíta það fé glatað sem færi í slíkar fjárfestingar. Þess vegna segir Hannes þá einungis styðja við listamenn sem þeir hafi mikla trú á að eigi möguleika á góðum frama. Þetta er ekki styrktarsjóður. Við erum að fjárfesta í listamönnunum, segir Hannes.

 

Barði í Bang Gang.

Þeir Barði og Garðar eru fyrstu listamennirnir til samstarfs við Tónvís en ekki þeir síðustu að sögn Tryggva Jónssonar, framkvæmdastjóra sjóðsins. Þetta er sjóður sem hefur sjálfstætt líf og mun taka að sér sambærileg verkefni fyrir fleiri. Það er ekki búið að velja næstu þátttakendur en það verður gert á næstu vikum og mánuðum.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×