Skoðun

Ákall til verndar Jökulsánum

Herförin gegn Jökulsám Skagafjarðar er komin á fulla ferð á ný.

Á fundi skipulagsnefndar Sveitarfélagsins Skagafjarðar 19. sept. sl. samþykktu fulltrúar Samfylkingar og Framsóknarflokks breytingu á aðalskipulagstillögunni sem nú er til meðferðar hjá sveitarfélaginu:

Skipulags og byggingarnefnd samþykkir að í aðalskipulagi verði gert ráð fyrir og sýnd möguleg svæði til virkjunar Héraðsvatna þ.e.a.s. við Skatastaði og Villinganes.

Þessi samþykkt hefur mikla þýðingu sökum þess að hún er það eina sem stendur í vegi fyrir virkjun Jökulsánna í Skagafirði. En virkjun þeirra er líklega ein forsenda þess að hægt verði að reisa álver á Húsavík. Þessi samþykkt er vitaskuld eftir yfirlýstum markmiðum Framsóknarflokksins um eflingu stóriðju hérlendis en gengur þvert gegn nýjustu markmiðum Samfylkingar um Fagra Ísland. Allt bendir til að Jökulsárnar í Skagafirði geti orðið næstu fórnarlömb virkjana- og stóriðjugræðginnar.

Aðalskipulag fyrir Skagafjörð hefur verið í vinnslu undanfarin ár og hart deilt um virkjanir í Jökulsánum. Vinstri grænir vilja friða Jökulsárnar gegn virkjunum.

Eignarhaldsfélagið Héraðsvötn hefur þegar tryggt sér virkjunarrétt við Villinganes en félagið er að meirihluta í eigu Kaupfélags Skagfirðinga og RARIK hf. Þessi virkjun hefur þegar farið í gegnum mat á umhverfisáhrifum og fengið tilskilin leyfi frá umhverfisráðuneyti og iðnaðarráðuneyti. Umræðu og frekari aðkomu almennings að þeirri framkvæmd er lagalega lokið. Aðeins hefur strandað á að sveitarstjórnir Skagafjarðar gæfu grænt ljós á framkvæmdina. Með því að setja virkjunina inn á aðalskipulag er þeirri hindrun rutt úr vegi.

Fari Villinganesvirkjun inn á aðalskipulag verður virkjanaleyfið sjálft dýrmæt söluvara, að virði hundraða milljóna ef ekki milljarða króna. Þetta vita forystumenn KS og RARIK og hugsa sér gott til glóðarinnar. Sömu aðilar ásamt Landsvirkjun hafa einnig sótt um rannsóknaleyfi til virkjana við Skatastaði, ofar í vatnasviði Jökulsánna.

Hvað sem annars má segja um Framsóknarflokkinn hefur hann verið sjálfum sér samkvæmur og sýnt stefnufestu og eindregna afstöðu til eflingar stóriðju hérlendis með tilheyrandi fórnum á náttúru og samfélagi.

Mín einlæga von er sú að þau öfl í Samfylkingunni verði ofan á sem gera nú tilraun til að breyta stefnu flokksins í virkjana og stóriðjumálum. En það eru verkin sem tala. Eitt fyrsta skrefið í þeim efnum væri að Samfylkingin standi með Vinstri grænum og öðru baráttufólki fyrir friðun Jökulsánna í Skagafirði.

Aðalskipulag sveitarfélags er stefnuyfirlýsing um ráðstöfun lands og náttúruauðlinda. Framkvæmdir við Villinganesvirkjun bíða þess eins að komast á skipulag.

Unnendur Jökulsánna í Skagafirði kalla á samstöðu til verndar Jökulsánum. Við hvetjum til baráttu gegn öllum tilraunum til að setja umræddar virkjanir inn á aðalskipulag sveitarfélagsins.




Skoðun

Sjá meira


×