Skoðun

Styðjum Erlu Ósk til formennsku

Jóhann Alfreð Kristinsson og Jóhanna Margrét Gísladóttir skrifar
Aðalfundur Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, fer fram í dag og hefst kosning til formanns klukkan 15 og stendur yfir til klukkan 19.

Tveir frambjóðendur hafa gefið kost á sér til embættis formanns og að baki hvorum frambjóðanda er 11 manna hópur sem býður sig fram til stjórnar­setu. Fyrirkomulag kosninganna er með þeim hætti að formannskjörið sker einnig úr um hvor hópurinn fer inn í stjórn félagsins.

Samhentur hópur frambjóðenda
Jóhanna Margrét Gísladóttir.
Erla Ósk Ásgeirsdóttir leiðir Blátt-framboðið í ár sem formannsefni. Erla hefur meðal annars séð um innra starf Sambands ungra sjálfstæðismanna og var kosningastjóri Heimdallar í borgarstjórnar­kosningunum í maí sl. Þar að auki gegndi hún starfi framkvæmdastjóra Stúdentaráðs HÍ veturinn 2004-5 auk fjölda annarra félagsstarfa. Greinarhöfundar eru meðal þeirra frambjóðenda sem bjóða sig fram með Erlu Ósk. Frambjóðendahópurinn er fjölbreyttur og hafa frambjóðendur víðtæka reynslu af félagsstörfum.

Skýrar málefnaáherslurMálefnaáherslur framboðsins eru skýrar. Við teljum mikilvægt að Heimdallur sé opið félag og leggi sig fram við að fá ungt fólk til að taka þátt í félagsstarfinu og láta sig þar með varða samfélagsleg málefni og umræðu um þjóðmál. Við viljum að félagið veiti flokksforystunni öflugt aðhald og sé aflvaki nýrra hugmynda í stjórnmálum. Þá teljum við afar mikilvægt að félagið beiti sér á sem flestum sviðum og viljum meðal annars leggja áherslu á umhverfismál, málefni innflytjenda og mannréttindamál svo eitthvað sé nefnt. Málefnaáherslur framboðsins má finna á heimasíðu okkar, www.blatt.is.

Vetur tækifæranna framundanMeð því að greiða Erlu Ósk atkvæði sitt í dag kjósa félagsmenn Heimdallar öflugan formann og í leiðinni samhentan og metnaðarfullan hóp ungs fólks til stjórnarsetu í félaginu. Nú er að renna í garð vetur prófkjöra og þingkosninga og framundan er án efa spennandi tími í íslenskum stjórnmálum. En komandi vetur verður ekki síst vetur tækifæranna fyrir ungt fólk til að tala sínu máli og vekja athygli á áherslumálum framtíðarinnar. Heimdallur á að vera öflugur málsvari ungs fólks og láta sig varða málefni þess hóps. Til þess þurfum við trausta forystu og hvetjum við alla félagsmenn í Heimdalli til að nýta kosningarétt sinn í dag.

Höfundar bjóða sig fram til stjórnar Heimdallar.




Skoðun

Skoðun

Björn Ragnarsson skrifar

Sjá meira


×