Sport

Toyota hefur áhuga á Raikkönen

Kimi Raikkönen (t.v.) er sterklega orðaður við Toyota um þessar mundir
Kimi Raikkönen (t.v.) er sterklega orðaður við Toyota um þessar mundir NordicPhotos/GettyImages

Þýska blaðið Bild greinir frá því um helgina að lið Toyota vinni nú hörðum höndum að því að lokka finnska ökuþórinn Kimi Raikkönen til liðs við sig þegar samningi hans við McLaren lýkur eftir næsta tímabil. Toyota er sagt hafa boðið honum 25 milljón evrur í árslaun gegn því að hann geri samning við liðið, en metnaður Toyota að komast á toppinn í Formúlu 1 er mikill.

Mikið hefur verið rætt um að Raikkönen muni taka við af Michael Schumacher hjá Ferrari þegar Þjóðverjinn ákveður að leggja stýrið á hilluna, en ef hann kýs að vera áfram, telja menn að Toyota gæti alveg eins komið vel til greina fyrir Finnan unga, sem margir vilja meina að sé besti ökumaðurinn í Formúlu 1 í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×