Sport

Ég átti engan þátt í ákvörðun Alonso

Briatore segir að Alonso hafi alfarið tekið ákvörðun sjálfur um að fara til McLaren
Briatore segir að Alonso hafi alfarið tekið ákvörðun sjálfur um að fara til McLaren NordicPhotos/GettyImages

Flavio Briatore, stjóri Renault-liðsins í Formúlu 1, vísar því á bug að hann hafi átt þátt í því að heimsmeistarinn Fernando Alonso hafi ákveðið að semja við McLaren árið 2007. Briatore er einnig umboðsmaður Alonso, en það var Briatore sem tók Alonso undir sinn verndarvæng hjá liðinu á sínum tíma og gaf honum tækifæri, sem á endanum varð til þess að Alonso varð heimsmeistari aðeins 24 ára gamall.

"Ég kom hvergi nálægt þessari ákvörðun hans, hvorki á beinan, né óbeinan hátt. Alonso hafði sjálfur samband við McLaren og öfugt og hann hefur ákveðið að snúa sér annað eftir að samningur hans rennur út á næsta ári," sagði Briatore.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×