Sport

Haukar töpuðu stórt í Frakklandi

Kvennalið Hauka tapaði stórt fyrir franska liðinu Pays D´Aix í Evrópukeppni kvenna í körfuknattleik í kvöld 99-59. Kesha Tardy var stigahæst í liði Hauka með 25 stig og 11 fráköst, en Helena Sverrisdóttir kom næst með 17 stig.

Það var ljóst strax í byrjun hvert stefndi, því franska liðið vann fyrsta leikhlutann 34-17 og hafði yfir í hálfleik 59-27.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×