Erlent

Spurning um hvenær en ekki hvort

"Það er aðeins spurning hvenær en ekki hvort hryðjuverkaárás verði gerð í fjármálahverfi Lundúna," sagði James Hart lögreglustjóri. Hann segir fjármálahverfið áberandi skotmark og að árás þar geti haft miklar afleiðingar. Hann sagði þó að engar haldbærar vísbendingar hefðu borist. Hundruð banka, tryggingafélaga, lögfræðistofa og annarra fyrirtækja eru í fjármálahverfinu.


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×