Erlent

Lík Menezes flutt til Brasilíu

Flogið var með lík mannsins sem lögreglan í London skaut á Stockwell lestarstöðinni í vikunni, til Brasilíu í gær. Hinn 27 ára Jean Charles de Menezes var skotinn í höfuðið, alls átta sinnum, eftir að hafa hunsað fyrirmæli lögreglunnar um að stoppa. Stefna lögreglunnar um að skjóta til að drepa hefur verið harðlega gagnrýnd og hafa mótmælendur sagt lögregluna verða að finna aðrar leiðir til að vernda borgara sína. Minningarathöfn um de Menezes verður haldin í Westminster kirkjunni í London á sama tíma og útför hans fer fram í Brasilíu.


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×