Skoðun

Ökum miðað við aðstæður

Nú er Vegagerðin að átta sig á því að óeðlilegt sé að sami hámarkshraði gildi á öllum stofnvegum landsins. Því er hún að setja upp ný merki á ýmsum stöðum sem kalla á að dregið sé úr hraða, svo sem við blindhæðir, krappar beygjur, brekkur eða aðrar varhugaverðar akstursaðstæður. Þau merki eiga að sýna leiðbeinandi hámarkshraða. Það er besta mál. Að sama skapi mætti líka hækka leiðbeinandi hámarkshraða á vissum vegaköflum landsins sem eru það góðir að reglur um 90 kílómetra hámarkshraða bjóða uppá það eitt að verða brotnar? Akstur verður nefnilega alltaf að fara eftir aðstæðum. Maður sem er einn á ferð um Mýrdalssand á beinum og sléttum vegi á góðum degi skapar ólíkt minni hættu í umferðinni þótt hann aki á 110 kílómetra hraða en sá sem brunar niður Ártúnsbrekkuna á 90, aftan í rassinum á næsta bíl sem er aftan í rassinum á næsta bíl.  Vegfarandinn á sandinum má hinsvegar eiga von á að verða sektaður um háar fjárhæðir af því hann er að brjóta lög. Það er margt að varast þegar haldið er út á þjóðvegina. Hraðakstur er vítaverður en þeir sem aka undir eðlilegum hraða á greiðfærum vegum við góð skilyrði skapa einnig hættu. Þeir halda bílaröðunum fyrir aftan sig og verða lestarstjórar. Ökumenn sem í aftari vögnunum sitja fyllast óþolinmæði og stressi og neyta færis að spana framúr sem þeir freista síðan stundum að gera við of þröngar aðstæður. Þá er munar oft mjóu - og jafnvel engu. Til að allt gangi óhappalaust er mikilvægt að allir vegfarendur haldi sem jöfnustum hraða og hafi gott bil á milli bíla. Álagið er vissulega mikið á akvegi landsins á þessum árstíma. Umferðarþunginn er verulegur í miðri viku og enn meiri um helgar, ekki síst í nágrenni höfuðborgarinnar. Þar má oft líkja vegunum við straumþungt fljót, þó með þeirri undantekningu að rennslið er í báðar áttir í einum og sama farveginum. Þjóðin er á faraldsfæti að keppast við að njóta þess besta sem landið hefur uppá að bjóða svo og erlendir ferðamenn sem í stórum stíl nota sumarfríið sitt til að heimsækja eldfjallaeyjuna norður við heimskautsbaug. Þar á ofan bætist að mest allir vöruflutningar út um land eru lagðir á vegina í stað þess að nota skip til að flytja þungavarning meðfram ströndum og inná hafnir landsins eins og hentugt sýnist þó í eyríki eins og okkar. Allt þetta og fleira til gerir það að verkum að ferðalög um landið krefjast varúðar. Vegarollurnar eru sér kapítuli. Þeim þarf nauðsynlega að bægja frá með einhverjum ráðum og þar geta bændur lagt sitt af mörkum með því að venja fé sitt fjarri vegum eða hafa það í áheldi. Það er efni í annan pistil. Gunnþóra Gunnarsdóttir - gun@frettabladid.is


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×