Sumarhúsalóðir á útsöluverði 3. júní 2005 00:01 "
Ef sumarhúsalóð, á þessum stað, kostar ekki nema á tvö hundruð og fimmtíu þúsund krónur er það spottprís," segir Sigurður Sveinsson, löggiltur fasteignasali hjá fasteignasölunni Bakki.com á Selfossi. Hann segir að eins hektara lóðir í Grímsnes- og Grafningshreppi seljist á um tvær til tvær og hálfa milljón og landið á Úlfljótsvatni sé ekki síðra. Hin nýja byggð Orkuveitunnar og Klasa við Úlfljótsvatn á að rúma að minnsta kosti 600 sumarhús en jörðin var lögð fram sem hlutafé í nýtt félag í eigu aðilanna fyrir hundrað og fimmtíu milljónir króna. Í hluthafasamkomulagi milli félaganna kemur fram að gert sé ráð fyrir því að lóðirnar sem byggjast eiga, verði um hálfur hektari að stærð. Þannig má ætla að hver lóð sé að jafnaði um tvö hundruð og fimmtíu þúsund króna virði en það getur verið breytilegt eftir stærð og legu hverrar lóðar. Guðmundur Þóroddsson, forstjóri Orkuveitunnar, segir að ákvörðun um verð fyrirtækisins hafi verið ákveðið eftir mat Magnúsar Leópoldssonar fasteignasala. "Það var miðað við það verð sem hefur verið í gangi þarna undanfarið." Magnús segir að verðmætaaukningin á landinu verði til þegar landið verði þróað og það skipulagt með Klasa sem sé fyrirtæki sem búi yfir þekkingu. "Við hefðum auðvitað getað staðið í því sjálfir að skipuleggja og selja landið en teljum réttara að leita til aðila sem hafa sérþekkingu á þessu sviði," segir Guðmundur. Hann gefur lítið fyrir þá aðferð að bera saman verð sumarhúsalóða með þessum hætti. "Við hefðum sjálfir getað sett nokkur hundruð milljónir í það að búa til vegi, byggja bryggju og svo framvegis og hver lóð hefði þá orðið meira virði. Við höfum ákveðið að gera það ekki og ætlum að láta aðra í þessa vinnu og þannig búum við til verðmæti en tökum ekki einir áhættuna að því þar sem við höfum fagaðila með okkur í þessu verkefni," segir Guðmundur.
Fréttir Innlent Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Innlent „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Innlent Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Innlent Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Innlent Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent Búast má við slyddu Veður Ný sýn fékk meirihluta Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent Ísraelsmenn vísa fréttamönnum á dyr Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir „Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega Leikskólar Árborgar verða lokaðir á milli jóla- og nýárs Völd óskast: Forseti allra kynslóða? Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Orku- og samgöngumál efst á lista nýs sveitarfélags Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Tíðindi í kjaradeilu flugvallarstarfsmanna og bein útsending úr Bakgarðshlaupinu Frestun verkfalla kemur til greina „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Sáttasemjari boðar til fundar: Fimm dagar til stefnu Orkuskipti, innflytjendalöggjöf og bensínstöðvalóðirnar „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Ný sýn fékk meirihluta Slagsmál enduðu með nefbroti Bíll logaði í Vesturbænum „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu Sjá meira