Sport

"Prinsinn" handtekinn

Þær fréttir eru að berast frá Sheffield á Englandi að fyrrverandi fjaðurvigtarheimsmeistarinn í boxi, "Prinsinn" Naseem Hamed hafi verið handtekinn í dag í tengslum við bílslys þar sem maður meiddist lífshættulega "Prinsinn" er einnig grunaður um að hindra framgang réttvísinnar. Hamed sem lagði hanskana á hilluna árið 2002 er grunaður um að hafa flúið af vetvangi slyss sem hann lenti í á Mercedes Bens bifreið sinni. Maður sem ók Volkswagen bíl liggur lífshættulega slasaður á spítala en hann festist inni í bíl sínum og þurfti að fytja hann í þyrlu á bráðamóttöku. Hann er fótbrotinn á báðum fótum og handleggbrotinn. Kona sem var farþegi í Volkswagen slasaðist einnig.
Box



Fleiri fréttir

Sjá meira


×