Sport

Coles og Quigley efstir

Þegar keppni er hálfnuð á Houston-mótinu í golfi hafa Ástralinn Gavin Coles og Bandaríkjamaðurinn Brett Quigley forystu, eru báðir á tíu höggum undir pari. Fjórir kylfingar eru jafnir á níu höggum undir pari. Þetta eru Vijay Singh, sem á titil að verja, og Bandaríkjamennirnir John Daly, Joe Ogilvie og Jeff Maggert. Sýnt verður beint frá þessu móti annað kvöld á Sýn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×