Erlent

Milljónir við útför páfa

Jóhannes Páll páfi II var jarðsettur í dag í grafhvelfingu undir Péturskirkjunni í Róm, í langfjölmennustu trúarlegu athöfn seinni tíma. Milljónir tóku þátt í athöfninni, þar á meðal Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra sem upplifði bæði sorg og gleði í útförinni.

Athöfnin var frekar látlaus en fylgt var fyrirmælum sem páfi gaf sjálfur fyrir nokkrum árum. Lík hans hvíldi í afar einfaldri kistu úr kýprusviði sem borin var upp að altari við Péturskirkjuna. Joseph Ratzinger kardínáli messaði og sagði m.a. að fullvíst væri að hinn elskaði páfi stæði nú við glugga í húsi föðurins, sæi viðstadda og blessaði þá. Kistan var svo borin inn í kirkjuna, úr augsýn fjöldans. Þar var hún sett ofan í aðra kistu úr málmi, sem var svo aftur sett í eikarkistu, og loks grafin undir marmarahellu í grafhvelfingu undir kirkjunni.

Meira en fjórar milljónir pílagríma hafa komið til Rómar vegna útfararinnar og öryggisgæsla á sér vart fordæmi. Aðeins 250 þúsund manns komust þó fyrir á Péturstorginu og þurftu margir að láta sér nægja að horfa á útsendingu frá athöfninni á risaskjám.

Það var margt fyrirmenna og þjóðarleiðtoga við athöfnina, þar á meðal fjórir konungar, fimm drottningar og sjötíu forsetar. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir athöfnina hafa snortið sig mjög og hún hafi einkennst bæði af sorg og gleði. Hann segir það hins vegar hafa komið sér á óvart hve mikið var klappað við athöfnina.

Pílagrímar eru nú farnir að tínast heim eftir útförina sem markar upphaf níu daga sorgartímabils. Þegar því lýkur munu kardínálar koma saman til fundar í Páfagarði og velja nýjan páfa.

Öryggisgæslan við útförina á sér vart fordæmi, frekar en mannfjöldinn sem var við athöfnina. Flug var bannað yfir borginni, auk þess sem herinn hafði mikinn viðbúnað. Flugvél var neydd til að lenda fyrir utan borgina í morgun þar sem grunur lék á að sprengja væri um borð. Sá grunur reyndist ekki á rökum reistur.

MYND/AP
MYND/AP



Fleiri fréttir

Sjá meira


×