Heilsa

Eplakurl hamingjunnar

Sagt er að fátt sé hlýlegra í húsi en ilmur af kanil og bökuðum eplum. Að sama skapi er haft fyrir satt að þessi eftirréttur, bragð hans og angan, útlit, áferð og hollusta, tendri hamingjuneista í hjörtum fólks, í það minnsta í brjóstum sem geta fundið til.

3 græn epli (kjarnhreinsuð og skorin í litla bita)

2 dl grófar hafraflögur

2 dl eplakökurasp

2 dl púðursykur

1 tsk. kanill

100 g smjör

Byrjið á því að kjarnhreinsa eplin og skera niður í frekar litla bita. Eplahýðið getur verið á eða ekki, allt eftir smekk hvers og eins. Smyrjið botninn á ofnföstu fati og dreifið svo eplunum yfir botn fatsins og stráið yfir þau kanil. Blandið höfrum, eplakökuraspi og sykri saman í skál og vinnið mjúkt smjörið saman við með höndunum.

Þessari blöndu er svo dreift yfir eplin og allt bakað í 200 gráðu ofni í 25 til 30 mínútur. Ef hafrarnir dökkna um of, setjið þá álpappír yfir bökuna síðustu mínúturnar. Berið fram með bólstrum af drifhvítum rjóma.








×