Innlent

Keppast um hylli Háskólans í Rvk.

Garðabær og Reykjavík hafa bæði boðið Háskólanum í Reykjavík lóðir undir nýjan skóla sem hýsa á skólastarf Háskólans í Reykjavík og Tækniskólans en þeir sameinast endanlega í haust undir einu nafni. Þorkell Sigurlaugsson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs háskólans, segir að ákvörðun um staðsetningu skólans verði tekin í apríl en sveitarfélögin skila tillögum til skólans í vikunni. Hann segir marga þætti ráða staðarvali, t.d. kostnað, aðkomu og vaxtarmöguleika. Garðabær býður skólanum landsvæði við Urriðaholt rétt hjá Vífilsstöðum og í nokkurra mínútna fjarlægð frá Smáralind. Ásdís Halla Bragadóttir, bæjarstjóri Garðabæjar, segir að þarna sé verið að skipuleggja ósnortið byggingarland þar sem ekkert takmarki skipulags- og þróunarmöguleika skólans. Hugmyndin sé að búa til þétta blandaða byggð af háskólastarfsemi, rannsóknarstofnunum, fyrirtækjum, íbúðum og verslun og þjónustu. Hún segir umhverfið einstakt með útsýni og í göngufæri við Heiðmörk. Þá sé engin mengun frá bílum né hávaðamengun frá flugvélum. Meginkosturinn sé þó sá að skipulag svæðisins sé langt komið og ekkert því til fyrirstöðu að hefja deiliskipulag og hanna byggingar. Skólinn geti hafið starfsemi sína árið 2007. Dagur B. Eggertsson, formaður skipulagsráðs, viðurkennir að skipulag svæðisins í Vatnsmýrinni þar sem Reykjavíkurborg býður skólanum upp á lóð sé ekki eins langt komið. Hann telur það þó ekki koma að sök þar sem enn eigi eftir að hanna húsnæðið og ætti það að haldast í hendur við skipulagsferlið. Reykjavíkurborg býður háskólanum upp á lóð í Vatnsmýrinni á svæði sunnan við Hótel Loftleiðir á flötum sem áður voru ætlaðar undir flugstöð. Þar er hugsunin að byggja upp Vatnsmýrina sem lykilsvæði í rannsóknum, nýsköpun og þróun, en fyrir á svæðinu eru Háskóli Íslands og Íslensk erfðagreining. Dagur segir Vatnsmýrina verða áfram hugsaða sem miðstöð vísinda og þekkingar hvaða ákvörðun sem Háskólinn í Reykjavík taki.
Í Urriðaholti á að rísa þétt blönduð byggð af háskólastarfsemi, rannsóknarstofnunum, fyrirtækjum, íbúðum og verslun og þjónustu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×