Sport

Bremen í undanúrslitin

Bikarmeistararnir í Werder Bremen tryggðu sér í kvöld farseðilinn í undanúrslit þýsku bikarkeppninnar í knattspyrnu með því að leggja að velli varalið Bayern Munchen í 8 liða úrslitunum. Bayern liðið átti sér draum um að ná alla leið í úrslitaleikinn þar sem möguleiki var fyrir hendi að mæta aðilliði félagsins eins og Vísir.is greindi frá fyrr í kvöld en það verður þrátt fyrir það að teljast nokkuð góður og óvæntur árangur af varaliði að ná alla leið í 8 liða úrslitin. Arminia Bielefeld er einnig komið áfram eftir 1 - 0 sigur á Hansa Rostock og Schalke sló út Hannover með 3 - 1 sigri. Á morgun mætast Bayern Munchen og Freiburg.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×