Innlent

Mörg fórnarlömb netsvika á Íslandi

Vonin um skjótfenginn gróða verður til þess að fjölmargir láta gabba sig á Netinu. Íslensk fórnarlömb netsvindls af ýmsu tagi skipta tugum á hverju ári. Fjöldi fólks hefur haft samband við fréttastofuna í kjölfar fréttar af netsvindli og það er greinilegt að fjölmargir hafa orðið glæpamönnum að bráð sem stunda iðju sína á Netinu. Dæmi eru um fólk sem hefur tapað hundruðum þúsunda og lent í vandræðum eftir að hafa gefið upplýsingar um kortanúmer, leyniorð og fleira. Með sívaxandi netnotkun fjölgar glæpum af þessu tagi. Hjá greiðslukortafyrirtækjunum þekkja menn vinsælustu svindlleiðirnar. Bergþóra Ketilsdóttir, forstöðumaður upplýsingatækni hjá Kreditkortum, segir það gjarnan þannig að fólk fái tilkynningu í tölvupósti um að það hafi dottið í lukkupottinn. Það þurfi hins vegar að gefa upp kortanúmer og gildistíma og þurfi kannski að inna litla greiðslu af hendi til að geta veitt hinum „háu verðlaunum“ viðtöku. Reyndin er aftur á móti sú að það er einhver annar að detta í „lukkupottinn“ ef korthafi veitir þessar upplýsingar. Til að komast hjá því að lenda í vandræðum af þessu tagi má hafa nokkur einföld ráð í huga:: - að huga vel að því hvaðan tölvupósturinn kemur, - að gefa aldrei upplýsingar um aðgangsorð, leyninúmer eða aðrar sambærilegar upplýsingar í tölvupósti eða öðrum álíka hætti, - að kanna vel öryggisyfirlýsingar og tryggingar þeirra fyrirtækja á Netinu sem skipt er við, og varast ýmiss konar gylliboð. Einn viðmælandi fréttastofunnar orðaði það sem svo að hljómaði eitthvert tilboð of gott til að vera satt, væru mestar líkur á að það væri heldur ekki satt.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×