Innlent

Heilbrigðisráðherra selur aðgerðir

 Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, hefur ákveðið að taka tilboði fjögurra heilbrigðisstofnana um kaup á tæplega 650 aðgerðum sérstaklega. Heildarkostnaður er nær 90 milljónum króna. Um er að ræða hjartaþræðingar, liðskipta- og augnaðgerðir. Stofnanirnar sem í hlut eiga eru Landspítali háskólasjúkrahús sem tekur að sér 150 augnaðgerðir, 70 hjartaþræðingar og 20 liðskiptaaðgerðir, Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri sem tekur að sér að gera 40 liðskiptaaðgerðir, Sjúkrahúsið á Akranesi en þar verða gerðar 16 liðskiptaaðgerðir aukalega og St. Jósefspítalann í Hafnarfirði þar sem gerðar verða 350 augnaaðgerðir. Ákvörðun ráðherra er liður í að draga enn frekar úr bið eftir þessum aðgerðum. Heildarkostnaðurinn við aðgerðirnar er tæpar 87 milljónir króna.


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×