Sport

Sigfús ekki með

Línumaðurinn snjalli, Sigfús Sigurðsson, leikur ekki með Íslenska landsliðinu í handbolta á heimsmeistaramótinu í Túnis í næsta mánuði. Meiðsli í baki tóku sig upp á nýjan leik og ljóst að Sigfús getur ekki æft næstu vikurnar. Viggó Sigurðsson landsliðsþjálfari sagði við íþróttadeildina í morgun að þetta væri áfall og útséð um að Sigfús yrði ekki með á heimsmeistaramótinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×