Sport

Fratello ráðinn til Grizzlies

Mike Fratello var í gær ráðinn þjálfari hjá Memphis Grizzlies eftir að hinn 71 árs gamli Hubie Brown sagði starfinu sínu lausu af heilsufarsástæðum. Fratello var 8 tímabil hjá Atlanta Hawks og 6 hjá Cleveland Cavaliers. Hann er sjöundi þjálfari Grizzlies. Jerry West, forseti Grizzlies, var hæstánægður með ráðningu Fratellos. "Þetta er byrjun á nýju tímabili hjá okkur," sagði West. "Okkur langar að líða vel með það sem við erum að gera."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×