Sport

Keflavíkurstúlkur unnu toppslaginn

Íslandsmeistarar Keflavíkur styrktu stöðu sína á toppi 1. deildar kvenna í körfubolta í kvöld með sigri á ÍS í toppslag deildarinnar, 73-53 en þrír leikir voru á dagskrá deildarinnar í kvöld. Keflavík er nú með 16 stig á toppnum eftir 8 leiki, fjórum stigum á undan Grindavík sem klifraði upp fyrir ÍS með sigri á Haukum í kvöld, 79-60. Þá valtaði Njarðvík yfir KR, 89-52. Þetta var aðeins annar sigur Njarðvíkurstúlkna sem sitja í næst neðsta sæti en KR stúlkur eru stigalausar á botninum, í sjötta og neðsta sæti.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×