Sport

Jón Arnór stigahæstur

Dynamo St. Petersburg, lið Jóns Arnórs Stefánssonar í Rússlandi, vann sinn fimmta leik í Evrópukeppni FIBA í fyrrakvöld þegar liðið lagði París PBR á útivelli, 74-80. Jón Arnór var stigahæstur í liði Dynamo með 16 stig. Leikurinn var jafn og spennandi og þurftu leikmenn Dynamo að hafa mikið fyrir því að knýja fram sigur en aðeins þrjú stig skildu liðin fyrir lokaleikhlutann. Leikurinn réðist að mestu á vítalínunni þar sem franska liðið hitti aðeins úr 8 skotum af 19 en Dynamo var með 90% vítanýtingu. Jón hitti vel utan af velli, tók átta skot og hitti úr fimm og var að auki með þrjú fráköst og þrjár stoðsendingar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×