Jól

Allir fá þá eitthvað fallegt

Í dag kl.16 opnar HANDVERK OG HÖNNUN jólasýninguna "Allir fá þá eitthvað fallegt" í Aðalstræti 12. Þetta er í sjötta sinn sem HANDVERK OG HÖNNUN heldur jólasýningu, og er um að ræða sölusýningu þar sem 32 aðilar sýna íslenskt handverk og listiðnað úr fjölbreyttu hráefni. Munirnir voru valdir inn á sýninguna af sérstakri dómnefnd. Sýnendur eru: Arnfríður Lára Guðnadóttir, Auður Vésteinsdóttir, Áslaug Höskuldsdóttir, Bjargey Ingólfsdóttir, Björk Ottósdóttir, Chuck Mack, Erla Hrönn Sigurðardóttir, Guðný Hafsteinsdóttir, Guðný María Höskuldsdóttir, Guðmundur Jón Stefánsson, Guðrún Indriðadóttir, Guðrún Steingrímsdóttir, Halla Ásgeirsdóttir, Halla Bogadóttir, Helga Birgisdóttir, Helga Björg Jónasardóttir, Helga Jóna Þórunnardóttir, Hélène Magnússon, Hjördís Hafnfjörð, Hrefna Aradóttir, Hugrún Ívarsdóttir, Jóna Sigríður Jónsdóttir, Karín M. Sveinbjörnsdóttir, Lára Gunnarsdóttir, Margrét Guðnadóttir, Maria del Carmen, Páll Garðarsson, Ragnheiður Ingunn Ágústsdóttir, Sigrún Ólöf Einarsdóttir, Sigurlína Osuala, Snjólaug G. Sigurjónsdóttir, Ullarvinnsla Frú Láru / Þórdís Bergsdóttir og Úlfar Sveinbjörnsson. Aðsókn á sýninguna hefur verið mjög góð undanfarin ár og óhætt að segja að sýningin hafi skipað sér fastan sess í jólaundirbúingi landsmanna. Sýningin er opin frá kl.13.00 - 17.00 alla daga og mun hún standa til 20. desember. Aðgangur er ókeypis


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×