Jól

Þýskar jólasmákökur

Sólveig Gísladóttir skrifar
Kanilstjörnurnar hvítu, hringlaga vanillukipferl, hunangskökur með valhnetum á toppnum og eplabrauð.
Kanilstjörnurnar hvítu, hringlaga vanillukipferl, hunangskökur með valhnetum á toppnum og eplabrauð. Myndir/AntonBrink
Carina heillaðist af Íslandi þegar hún sá heimildarmynd um landið sextán ára gömul. "Þá ákvað ég að ferðast þangað eftir útskrift úr menntaskóla,“ segir hún glaðlega en hér hefur hún verið í tólf ár. Carina segist vera töluvert jólabarn og þó hún kunni vel við íslenska siði hafi hún alltaf haldið mikið upp á þýskar jólahefðir enda iðulega heimsótt heimalandið um hátíðirnar. „Við erum til dæmis alltaf með lifandi kerti á jólatrénu og svo á ég þýskt skraut sem ég fékk frá mömmu minni og frænku.“

Carina heldur mikið upp á jólin og þýskar jólasmákökur eru ómissandi hluti af jólahaldinu.
Í Þýskalandi er sterk jólakökuhefð. „Frænkur mínar baka yfirleitt í kringum tuttugu til þrjátíu sortir fyrir jólin. Ég hef lítið verið í bakstri og hringdi því í mömmu til að spyrja hvað væri best að baka fyrir Jólablaðið,“ segir hún glettin.

Carina valdi fjórar týpískar þýskar kökur. „Ég valdi þær sem hægt var að fá allt hráefni í hér á Íslandi,“ segir hún en bendir á að það eina sem erfitt hafi verið að nálgast hafi verið valhnetumjöl en það bjó hún til sjálf. 

Kanilstjörnur



Deig

500 g malaðar möndlur

300 g flórsykur

2 tsk. kanill

2 eggjahvítur

2 msk. vatn eða appelsínusafi eða möndlulíkjör

flórsykur á borðplötuna

Glassúr

1 eggjahvíta

125 g flórsykur

Blandið möndlum, flórsykri og kanil saman. Bætið 2 eggjahvítum og vatni/appelsínusafa/möndlu­líkjör út í blönduna og hnoðið allt saman þar til deigið verður slétt.

Skiptið deiginu í tvennt (eða þrennt eftir stærð borðplötu), fletjið út á flórsykursstráðri borðplötunni (1 cm á þykkt). Setjið pappír á bökunarplötu og raðið útstungnum stjörnum á hana. Dýfið forminu af og til í flórsykur.

Þeytið eggjahvítu. Haldið áfram að þeyta á meðan flórsykrinum er bætt út í smám saman. Dreifið glassúrnum á stjörnurnar með pensli, skeið eða sprautu. Bakað við 140°C á neðstu rim í 10-15 mín.

Jólablað 2015 Carina Kramer jólasmákökur þýskar kökur
Eplabrauð

1 kg epli

350 g sykur

375 g rúsínur

200 g möndlur eða hesli­hnetur, heilar

670 g hveiti

30 g lyftiduft

1 msk. kúfuð kakó

100 ml epla- eða appelsínusafi eða romm

1 tsk. kanill

Afhýðið eplin, raspið þau gróft og blandið saman við sykurinn. Látið bíða í 4-6 klst. Blandið öllu öðru út í og fyllið í tvö brauðform (ca. 30 cm á lengd). Bakið við 175°C í 90 mín.

 

Vanillukipferl



Deig

560 g hveiti

160 g sykur

400 g smjör

200 g heslihnetur, malaðar

Ídýfa

100 g sykur

8 tsk. vanillusykur

Blandið hveiti, sykri og smjöri (í litlum bitum) saman, bætið heslihnetum út í og hnoðið allt saman þangað til deigið verður slétt og fallegt. Kælið í 1 klst., rúllið deiginu upp eftir endilöngu, skerið fingurþykkar sneiðar og búið til litla hálfmána (Kipferl). Því minni sem kökurnar eru, þeim mun síður brotna þær.

Setjið pappír á bökunarplötu, raðið hálfmánunum á og bakið við 175°C í ca. 15 mín. á næstneðstu rim eða þar til þeir eru gullbrúnir.

Rúllið enn vel heitum kökunum upp úr sykur-vanillusykurblöndunni og látið þær kólna.

 

Hunangskökur með jólakryddi og hnetum



Hunangskaka

Smjör og malaðar möndlur til að strá í formið

120 g hunang

80 g púðursykur

100 ml rjómi

100 g valhnetur, malaðar

100 g valhnetur, hakkaðar

200 g smjör, mjúkt

3 egg

400 g hveiti

1 msk. kakó

1 hnífsoddur vanillufræ, skafin úr vanillustöng

1 tsk. malaður engifer (ef vill)

1 hnífsoddur af múskati

½ – 1 tsk. kanill

1 hnífsoddur af kardimommu

1 tsk. lyftiduft

Síróp

50 ml appelsínusafi

175 g sykur

30 valhnetuhelmingar

Hitið ofninn í 180°C, Stráið möndlum í ofnskúffu. Hitið í potti hunang, sykur og rjóma þar til sykurinn er bráðinn. Látið kólna. Þeytið smjör með hunangsblöndunni og hrærið egg saman við. Blandið saman hveiti, kakói, möluðum og hökkuðum valhnetum, kryddi og lyftidufti og bætið út í fyrri blönduna. Smyrjið deiginu á plötu og bakið í ca. 45 mín. eða þar til ekkert festist við prjón sem stungið er í. Látið kólna. Hitið appelsínusafa og sykur í potti og látið malla í 10 mín. Dýfið valhnetum í sírópið og setjið ofan á kökuna. Afganginum má dreifa yfir. Skerið í bita.






×