Menning

Sýning hjá Landsbjörgu

Slysavarnarfélagið Landsbjörg stendur fyrir björgunarsýningu á Hótel Loftleiðum í dag og hefst hún klukkan eitt. Á sýningunni verða margir öflugustu jeppar og snjóbílar björgunarsveitanna ásamt bátum og vélsleðum sýndir. Þá verður hægt að skoða stærsta uppblásanlega sjúkrahús landsins og kynnast hvaða búnað alþjóðabjörgunarsveitin tekur með sér í útkall á hamfarasvæði erlendis. Milli klukkan eitt og þrjú verða fyrirlestrar opnir almenningi um rautt spjald á mænuskaddaða, skyndihjálp og ferðamennsku.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×