Innlent

Hverfafundir á næstunni

Þórólfur Árnason borgarstjóri efnir til funda með íbúum allra hverfa Reykjavíkurborgar dagana 11. – 26. október. Í tilkynningu segir að hverfafundirnir séu hugsaðir sem samræða borgarbúa og borgarstjóra og séu kjörið tækifæri fyrir borgarbúa að koma sínum skoðunum á framfæri um leið og þeir eru tækifæri borgarstjóra til að kynnast áherslum íbúa, en þær geta verið mismunandi eftir hverfum borgarinnar. „Þjónustan í borginni“ er yfirskrift fundanna í ár og verður sjónum beint að því hvernig Reykjavíkurborg leitast við að mæta óskum og þörfum borgarbúa svo lífsgæði megi verða sem mest í Reykjavík og hvar megi gera betur. Talsverðar breytingar eru framundan í skipulagi þjónustunnar, s.s. með stofnun þjónustumiðstöðva í hverfum og stofnun símavers auk þess sem rafræn þjónusta eykst sífellt. Þá eru fyrirhugaðar breytingar í þjónustu strætisvagna og í sorphirðu. Reykjavík er skipt í níu hverfi og í hverju þeirra er starfandi hverfaráð sem er ætlað að stuðla að eflingu hvers konar hverfisbundins samstarfs. Hverfaráðin eru vettvangur samráðs íbúa, félagasamtaka, atvinnulífs og borgaryfirvalda. Allir fundirnir hefjast klukkan 20 og standa þeir yfirleitt í um það bil tvo tíma. Fundunum verða gerð góð skil á vef Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is, og munu kynningar borgarstjóra og umræður frá hverjum fundi birtast á vefnum eftir hvern fund. Hér að neðan er að finna upplýsingar um tíma og staðsetningar fundanna:Kjalarnes mánudaginn 11. október Fundarstaður: Klébergsskóli Hlíðar þriðjudaginn 12. október Fundarstaður: Hlíðaskóli   Árbær miðvikudaginn 13. október Fundarstaður: Árbæjarskóli   Breiðholt fimmtudaginn 14. október Fundarstaður: Breiðholtsskóli   Laugardalur mánudaginn 18. október Fundarstaður: Laugalækjarskóli   Háaleiti miðvikudaginn 20. október Fundarstaður: Álftamýrarskóli   Grafarvogur fimmtudaginn 21. október Fundarstaður: Víkurskóli   Miðborg mánudaginn 25. október Fundarstaður: Austurbæjarskóli


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×