Innlent

Lekinn óþolandi með öllu

Forseti Alþingis og fyrsti varaforseti segja óþolandi með öllu að stefnuræða forsætisráðherra skuli hafa ratað inn á borð fjölmiðla. DV greindi í dag frá efni fyrstu stefnuræðu Halldórs Ásgrímssonar sem flutt verður í kvöld. Allir þingmennirnir, sextíu og þrír, liggi undir grun. Ræðan var afhent þingismönnum á föstudag og var sérstaklega merkt sem trúnaðarmál, að vanda. Vegna fréttar DV sendi forsætisráðuneytið frá sér tilkynningu þar sem segir að ljóst sé að með fréttaflutninig af efni ræðunnar hafi trúnaðarskylda, sem kveðið er á um í lögum, verið brotin. Þetta er reyndar í annað skiptið á jafn mörgum árum sem fjölmiðlar birta efni úr stefnuræðu forsætisráðherra áður en hún er flutt en það var fréttastofa Stöðvar 2 sem greindi frá innihaldi hennar á síðasta ári. Þá var talað um að gera gangskör vegna lekans en lítið varð úr. Guðmundur Árni Stefánsson, fyrsti varaforseti Alþingis, segir að rætt hafi verið um málið í forsætisnefndinni og hann hyggur að farið hafi verið yfir það í flestum þingflokkum. Hann segir hins vegar ekki margt til ráða. Lögreglurannsókn sé til dæmis til lítils. Guðmundut trúir bara ekki öðru en að um slys sé að ræða.   Halldór Blöndal, forseti Alþingis, tekur í sama streng og telur þetta óþolandi. Hann segir að slíkur trúnaðarbrestur hljóti að hefna sín, ekki síst á stjórnarandstöðuþingmönnum, verði sú leið farin að breyta þingsköpum á þann hátt að forsætisráðherra flytji stefnuræðu sína fyrst á blaðamannafundi, eða að sá hópur þingmanna sem fái ræðuna í hendur verði skorinn niður. Forseti Alþingis ræddi málið meðal annars við forsætisráðherra í morgun en engar ákvarðanir voru teknar um slíkar breytingar. Ritstjórnir fjölmiðla líta málið ólíkum augum en deilt er um hvort trúnaður skuli ríkja ef fjölmiðlar ná í ræðuna eftir eigin leiðum. Spurður hver skaðinn sé af slíkri birtingu segir Guðmundur Árni hann auðvitað ekki vera stórkostlegan. „Það hefur enginn dáið,“ segir Guðmundur.


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×