Innlent

Kostnaðurinn enn á huldu

Endurbótunum sem staðið hafa yfir í allt sumar í Alþingishúsinu er lokið í bili. Upphaflega var gert ráð fyrir að kostnaður við þær næmi um 75 milljónum króna en endanlegur kostnaður liggur ekki fyrir. Þó er ljóst að reikningurinn verður í það minnsta 100 milljónir króna. Alþingi kynnti framkvæmdirnar á blaðamannafundi í gær en um þriðja hluta heildarendurbóta hússins er að ræða. Nauðsynlegt var að brjóta upp gólfplötur á jarðhæð hússins og skipta um jarðveg undir þeim en verulegar rakaskemmdir voru farnar að gera vart við sig. Að öðru leyti hefur verið reynt að færa húsið því sem næst í sitt upprunalega horf. Þannig er búið að mála þingflokksherbergi í bjartari litum, fjarlægja gólfteppi svo að gólffjalir eru komnar í ljós og taka upp ljósakrónur og gömul húsgögn sem áður voru í geymslu. Arkitektar hjá Batteríinu sáu um hönnun en Ístak annaðist framkvæmdirnar. Gert var ráð fyrir að kostnaður við verkið yrði um 75 milljónir króna en eins og þegar hefur komið fram í Fréttablaðinu verður hann að minnsta kosti 100 milljónir króna, eða þriðjungi hærri en áætlað var. Meðal skýringa sem Halldór Blöndal, forseti Alþingis, tilfærði voru ófyrirséðir þættir á borð við jarðvegsskiptin og þinghald sumarsins en vegna sumarþingsins varð verktakinn að ráðast í kostnaðarsaman bráðabirgðafrágang. Endanlegur kostnaður liggur ekki fyrir og sagði Halldór að ekkert óeðlilegt væri við það þar sem svo skammt væri frá lokum framkvæmda. Halldór sagði að þegar farið er í endurbætur á svo gömlu húsum, sérstaklega í Kvosinni þar sem flóðs og fjöru gætir í kjöllurum, þá á að gera ráð fyrir verulegum skekkjumörkum. Aðspurður hvort slík kostnaðarhækkun væri viðunandi svaraði Halldór því til að það eina sem væri viðunandi þegar gert væri við svo gamalt hús væri að það væri vel gert. "Útboð eru ágæt til síns brúks en stundum taka þau ekki yfir alla hluti, það er alveg ljóst," bætti þingforsetinn við.


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×