Innlent

Stálu og skemmdu

Brotist var inn í félagsmiðstöðina Tópas í Bolungarvík um síðustu helgi en í sama húsi er heilsdagsskóli grunnskólans. Úr húsinu var stolið borðtölvu, leikjatölvu, myndbandstæki, afruglara, lítilræði af peningum og aukafatnaði frá einu barnanna úr heilsdagsskólanum. Þá voru unnar talsverðar skemmdir eins og á millihurðum sem brotnar voru upp í leit að verðmætum. Þeir sem urðu varir við mannaferðir í kringum félagsmiðstöðina um helgina eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í Bolungarvík.


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×