Innlent

Ólafur Börkur skilaði séráliti

Allir dómarar Hæstaréttar nema einn eru sammála um að lagaprófessorarnir Eiríkur Tómasson og Stefán Már Stefánsson séu hæfastir umsækjenda um dómarastöðu við réttinn. Einn dómari, Ólafur Börkur Þorvaldsson, skilaði séráliti þar sem hann leggur áherslu á afburðaþekkingu Jóns Steinars Gunnlaugssonar á sviði lögfræði.  Umsækjendurnir sjö um stöðu hæstaréttardómara fengu í dag umsögn Hæstaréttar um þá sem sóttu um stöðuna. Þar er farið ítarlega yfir störf umsækjendanna og lagt mat á hverjir standi fremstir að vígi á hverju því sviði sem vegið er í umsögninni. Þessi svið eru: Nám umsækjenda, dómarareynsla, reynsla af lögmannsstörfum, reynsla af lögfræðikennslu á háskólastigi, ritstörf á sviði lögfræði, seta í nefndum á vegum ríkis og stofnana, undirbúningur að lagasetningu, önnur störf á sviði stjórnsýslu og loks stjórnunarstörf. Í niðurlagi umsagnarinnar segir að að virtu öllu framangreindu sé það mat Hæstaréttar að Eiríkur Tómasson og Stefán Már Stefánsson standi öðrum umsækjendum töluvert framar að hæfni til að hljóta embætti hæstaréttardómara. Næst þeim kemur Hjördís Björk Hákonardóttir en að baki henni eru ekki forsendur til að gera greinarmun á Allan Vagni Magnússyni, Eggerti Óskarssyni og Jóni Steinari Gunnlaugssyni. Hæstiréttur skipar Leó Löve aftast í röð umsækjenda. Að þessari umsögn standa átta af níu dómurum Hæstaréttar. Sá eini sem ekki skrifar upp á hana er Ólafur Börkur Þorvaldsson en hann var sem kunnugt er skipaður dómari í Hæstarétti í fyrra og dró sú skipan dilk á eftir sér, meðal annars vegna frændsemi Ólafs við fyrrverandi forsætisráðherra, Davíð Oddsson. Ólafur Börkur segir í séráliti sínu að hann telji hæpið að raða umsækjendum eftir hæfni en þar sem hinir átta hafi tekið þann kost, gerir hann það líka, en með fyrirvara. Hann tilgreinir Jón Steinar Gunnlaugsson sérstaklega í umsögn sinni vegna kunnáttu hans og reynslu og segir hann vera afburðamann á sviði lögfræði. Því sé honum ómögulegt að raða Jóni jafn aftarlega og aðrir dómarar Hæstaréttar gera. Ólafur Börkur telur aðra umsækjendur ákaflega hæfa. Geir Haarde fjármálaráðherra skipar í stöðuna þar sem Björn Bjarnason dómsmálaráðherra lýsti sig vanhæfan í málinu.


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×