Gagnrýni

Daðrað í rauntíma

Það er best að segja það strax að þeir sem vilja skotbardaga, bílaeltingarleiki og tæknibrellur í bíó er ekki ráðlagt að sjá Before Sunset, nema þá að viðkomandi séu reiðubúnir að leggja allar sínar væntingar sem þeir hafa haft til kvikmynda til hliðar, og opna hug sinn fyrir allt öðruvísi kvikmyndalist en þeirri sem hæfir best poppi og kóki. Það er ólíklegt að slíkt gerist í stórum stíl. Ég var einn í bíó.

Before Sunset fjallar um bandaríska rithöfundinn Jesse og frönsku stúlkuna Celine og er framhald myndarinnar Before Sunrise eftir sama leikstjóra. Í þeirri mynd hittust Jesse og Celine í lest í sunnanverðri Evrópu og tókust með þeim ákaflega rómantísk skyndikynni. Í Before Sunset eru liðin níu ár frá þeim kynnum og Jesse hefur skrifað skáldsögu sem byggir á reynslunni. Í upphafi myndarinnar svarar hann spurningum um bókina eftir upplestur í bókabúð í París, þar sem myndin gerist, og er skemmst frá því að segja að í einu horninu á meðal áheyrenda sinna sér Jesse Celine. Honum bregður. Hún hefur breyst. Hann tekur hana tali og þau fara á kaffihús. Hann hefur tæpa tvo tíma þangað til hann á að taka flugið aftur til Bandaríkjanna.

Myndin gerist í rauntíma. Byrjar í bókabúðinni. Þau ganga um borgina. Þau daðra. Rifja upp. Setjast niður. Gantast. Reykja. Fara í siglingu. Fara á trúnó. Fara undan í flæmingi. Tala í gátum. Reyna að halda haus. Ástin, og aðrar eldheitar tilfinningar -- vonbrigði, biturleiki, ótti og angist -- kraumar undir niðri. Hvert einasta skref er myndað. Það er engin tónlist, engin förðun og ef þetta er ekki dogma eins og það gerist best þá veit ég ekki hvað. Lars von Trier? Niðurstaða: Þó svo mynd um tvær heimspekilega sinnaðar manneskjur að daðra í París í rauntíma hljómi óneitanlega dálítið tilgerðarlegt, þá tekst leikstjóranum að búa til ótrúlega góða mynd fyrir þá sem hafa áhuga á manneskjum í allri sinni dýpt, tilraunakenndri kvikmyndalist og afspyrnugóðum leik. Snilld.

Guðmundur Steingrímsson

Before Sunset

Leikstjóri: Richard Linklater

Leikarar: Ethan Hawke, Julie Delpy

Bandaríkin 2004.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×