Erlent

Höfundur Sasser veirunnar ákærður

Meintum höfundi Sasser veirunnar hefur verið birt formleg ákæra. Þýski saksóknarinn tíundar í ákæruskjalinu brot þýska námsmannsins Sven Jaschan og ber á hann þær sakir að hafa unnið skemmdarverk á tölvum, hagrætt skjölum og truflað tölvukerfi í almannaþágu. Alls hafa 143 fórnarlömb Sasser veirunnar haft samband við saksóknara og tilkynnt um tjón eftir að veiran fór hamförum í tölvum þeirra í maí síðastliðnum. Ungi tölvuþrjóturinn gæti átt yfir höfði sér allt að fimm ára fangelsisdóm verði hann sakfelldur. Microsoft setti eins og marga rekur minni til talsvert fé honum til höfuðs, 250 þúsund dali, en féð verður því aðeins greitt ef námsmaðurinn verður sakfelldur. Heimild: taeknival.is


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×