Sport

Valur Íslandsmeistari í dag?

Valur getur í dag tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í kvennaflokki í knattspyrnu í fyrsta sinn í fimmtán ár. Valur mætir Breiðabliki á Valsvellinum klukkan 14 en á sama tíma keppa Fjölnir og ÍBV. Valur hefur sex stiga forystu og nægir jafntefli, svo framarlega að ÍBV vinni Fjölni. Tapi Valur og ÍBV vinnur ráðast úrslitin um Íslandsmeistaratitilinn í síðustu umferðinni í Eyjum 5. september. ÍBV hefur betri markamun en Valur og verður að vinna báða sína leiki og Valur að tapa báðum sínum til þess Vestmannaeyjastúlkur verði meistarar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×