Erlent

13 skæruliðar drepnir

Varnarliðsmenn í Írak drápu þrettán skæruliða í hörðum bardögum utan við borgina Baquba í morgun. Skæruliðarnir réðust til atlögu með sprengjuvörpum og handsprengjum á varnarliðsmenn þar sem þeir aðstoðuðu bandaríska hermenn við að brjóta á bak aftur skyndiáhlaup í Baquba. Ekkert mannfall varð meðal varnarliðsmanna eða hermanna en hins vegar var túlkur, sem starfar fyrir Bandaríkjaher í Írak, skotinn niður í morgun.


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×